Kleinurnar mínar ~ Uppskrift



Ég á það til að skella einstakasinnum í köku eða kleinur með kaffinu ;) Hér áður fyrr þá miklaði ég það svo fyrir mér að steikja kleinur, ég hélt að það væri svo mikið bras. En það er sko aldeilis ekki mikið mál að skella í nokkrar kleinur ;) Mikið minna mál en margt annað. Ætli það taki ekki um það bil einn og hálfan tíma.

Ég hef prufað nokkrar uppskriftir og aðeins verið að prufa mig áfram til að finna uppskrift sem ég er sátt við og nú loksins held ég að ég sé búin að hnoða saman ágætis uppskrift, sem ég get deilt með ykkur ;)

Endilega prufið að skella í nokkrar kleinur, því að það er svo mikið einfaldara en margir halda :)
Hér kemur uppskriftin ásamt nokkrum myndum sem ég tók í dag þegar ég var í kleinubakstri.


 Kleinur að hætti Fríðu (u.þ.b. 85 stk.)

Uppskrift: 
1200 gr hveiti
250 gr sykur
100 gr smjörlíki (við stofuhita)
2 stk egg
10 tsk lyftiduft
5 tsk kardimommudropar
4,5 dl mjólk

Aðferð:
Mér finnst gott að nota aðferðina sem amma notaði alltaf, en þá eru þurrefnin sett í “fjall” á borðinu og gerð hola í miðjuna. Eggin eru sett í holuna og hnoðað saman við þurrefnin. Mjólkin og kardemommudroparnir er síðan sett í holu á “fjallinu” og öllu hnoðað vel saman. Deiginu er síðan skipt í fjóra helminga, flatt út og skorið í tígla. Gat skorið í miðjuna á hverjum tígli og snúið upp á. Steikið kleinurnar í örfáar mínútur á báðum hliðum upp úr palmin feiti í potti.
Þegar ég tek kleinurnar úr pottinum, þá set ég þær á bökunarplötu sem ég hef sett bökunarpappir á og eldhúsrúllubréf, til að mesta feitin renni af þeim.
Einnieg er hægt að hnoða deigið í hrærivél með K-inu. Þá eru öll hráefni sett í skálina og hnoðað vel áður en þeiginu er skipt upp í fjóra hluta og flatt út.

Öll þurrefnin ásamt smjörlíkinu sett í "fjall" á borðinu.

Hola gerð í miðjuna og eggin sett ofan í hana.
Hnoðað aðeins saman.

Ný hola gerð í "fjallið" og mjólkinni ásamt 
kardemommudropunum hnoðað saman við.

Hnoðað saman í kúlu.

Og kúlunni skipt í fjóra helminga.

Flatt út.

Skorið í tígla, með gat í miðjunni
og snúið uppá.



Fínustu kleinur tilbúnar til steikingar.

Ég nota tvö stykki af palmin feiti til að steikja upp úr.

85 stk. kleinur tilbúnar.

Ég vona að einhver geti nýtt sér þessa uppskrift mína.

Ásamt því að skrifa pistla hér á bloggsíðuna mína og á bleikt.is, þá held ég úti opnum snapchat reikningi og ykkur er velkomið að fylgja mér þar ef þið hafið áhuga

Snap:fridabsandholt

Ummæli

Vinsælar færslur